Framleiðendur Eurovision-söngvakeppninnar hafa gefið út rásröð úrslitanna á laugardaginn. Austurríki mun opna kvöldið með smelli sínum um Edgar Allan Poe og Bretland mun loka kvöldinu á heimavelli.
Var þetta tilkynnt seint í gærkvöldi, eftir að ljóst var hvaða 26 lög myndu keppa í úrslitum Eurovision-keppninnar í ár. Eru það framleiðendur keppninnar sem ákveða rásröðina og er það gert með það að markmiði að gera upplifunina sem besta fyrir sjónvarpsáhorfendur.
- Austurríki: Teya & Salena - Who The Hell Is Edgar?
- Portúgal: Mimicat - Ai Coração
- Sviss: Remo Forrer - Watergun
- Pólland: Blanka - Solo
- Serbía: Luke Black - Samo Mi Se Spava
- Frakkland: La Zarra - Évidemment
- Kýpur. Andrew Lambrou - Break A Broken Heart
- Spánn: Blanca Paloma - Eaea
- Svíþjóð: Loreen - Tattoo
- Albanía: Albina & Familja Kelmendi - Duje
- Ítalía: Marco Mengoni - Due Vite
- Eistland: Alika - Bridges
- Finnland: Käärijä - Cha Cha Cha
- Tékkland: Vesna - My Sister's Crown
- Ástralía: Voyager - Promise
- Belgía: Gustaph - Because Of You
- Armenía: Brunette - Future Lover
- Moldóva: Pasha Parfeni - Soarele şi Luna
- Úkraína: TVORCHI - Heart of Steel
- Noregur: Alessandra - Queen of Kings
- Þýskaland: Lord of the Lost - Blood & Glitter
- Litháen: Monika Linkytė - Stay
- Ísrael: Noa Kirel - Unicorn
- Slóvenía: Joker Out - Carpe Diem
- Króatía: Let 3 - Mama ŠČ!
- Bretland: Mae Muller - I Wrote A Song
Í þessari röð verða lögin flutt á úrslitakvöldi Eurovision-keppninnar.
Skjáskot/Eurovision.tv