Ríkisstjórn Lúxemborgar samþykkti í morgun að landið myndi taka þátt í Eurovision á næsta ári. Þrír áratugir eru síðan Lúxemborg tók þátt í söngvakeppninni síðast.
Greint var frá þessu í dag.
„Við erum gríðarlega spennt að bjóða Lúxemborg aftur velkomin í Eurovision-söngvakeppnina eftir 30 ára fjarveru. Landið er eitt það sigursælasta í sögu keppninnar, með 5 sigurvegara innan raða sinna. Við hlökkum gríðarlega til að vinna með RTL í að snúa aftur á stærsta tónlistarviðburð heims árið 2024,“ sagði Martin Österdahl, framkvæmdastjóri keppninnar í tilkynningu.