Svart­höfði og stjörnur úr Firefly á svæðinu

Gestir ráðstefnunnar eru klæddir í allskyns búninga.
Gestir ráðstefnunnar eru klæddir í allskyns búninga. Ljósmynd/Aðsend

Midgard ráðstefnan, tileinkuð ævintýraheimum og vísindaskáldskap verður nú haldin í þriðja sinn þann 9. og 10. september næstkomandi í Laugardalshöll. Hátíðin verður með stærra sniði en áður og er búist við þúsundum manna. Einn skipuleggjenda segir íslenskan markað fyrir ráðstefnu af þessu tagi vera gríðarlega stóran. Gestir munu geta sótt vinnustofur og pallborð ásamt því að hitta fræga leikara og rithöfunda. Einnig verður fjöldi sýningaraðila og listamanna á svæðinu. 

Haraldur Hrafn Guðmundsson, einn skipuleggjenda og stjórnandi sýningarsvæðis ráðstefnunnar segir að það sem dragi flesta að sé samvera áhugafólks um vísindaskáldsögur, ævintýraheima, bókmenntir, spil, tölvuleiki og teiknimyndasögur og fleira.  

Margt er á svæðinu til að sýna og sjá.
Margt er á svæðinu til að sýna og sjá. Ljósmynd/Aðsend

Orkar og tröll á svæðinu

Ráðstefnan var fyrst haldin árið 2018 og fór hún fram úr björtustu vonum skipuleggjenda. Árið 2020 þurfti að gera hlé á ráðstefnunni vegna kórónaveirufaraldursins en nú kemur hún tvíefld til baka.

„Þetta er eina hátíðin sinnar tegundar á Íslandi og þarna er verið að hampa listformum, spilum og áhugamálum sem alla jafna fá ekki háan sess. Þarna hittast allir og hafa gaman og fá aðeins að njóta þess að skemmta sér á sínu sviði,“ segir Haraldur, sem er alla jafna kallaður Krummi, í samtali við mbl.is.

Hér má sjá Star Wars flaugina Tie Fighter sem verður …
Hér má sjá Star Wars flaugina Tie Fighter sem verður á staðnum. Ljósmynd/Aðsend

Búist er við að um þrjú þúsund manns sæki svæðið en boðið verður upp á ýmis pallborð, kennslu eins og pallborð rithöfunda og tölvuleikjahönnuða og tindátamálun. Krummi segir annan hvern mann vera klæddan búning á svæðinu en hátíðin sé fyrir alla.

„Það eru allir velkomnir, þetta er bæði fyrir fjölskyldufólk og fullorðna. Þarna er annar hver maður í búningi, það eru orkar og tröll og Star Wars deildin 501 legion verður þarna, þar eru Storm Trooper-ar og Svarthöfði,“ segir Krummi.

Íslensk uppreisn fyrir Firefly mögulega í uppsiglingu

Til dæmis verður hægt að hitta leikara úr þáttunum Firefly og berja Star Wars geimflaugina Tie Fighter augum.

Spurður hvort koma leikaranna tveggja, Jewel Staite og Sean Maher úr Firefly þáttunum vinsælu muni mynda íslenskt uppreisnarafl tileinkað þeim, segist Krummi vona það.

Jewel Staite og Sean Maher árið 2002 þegar Firefly kom …
Jewel Staite og Sean Maher árið 2002 þegar Firefly kom út. Ljósmynd/Aðsend, Ljósmynd/IMDB

Aðeins ein sería af þáttunum var framleidd árið 2002 áður en þættirnir voru blásnir af. Í kjölfarið skapaðist mikil sorg hjá aðdáendum sem fengu þó lokahnykk á söguna með kvikmyndinni Serenity sem kom út árið 2005. Aðdáendur hafa margir syrgt þættina síðan.

Að lokum hvetur Krummi fólk til að fylgjast vel með Facebook síðu og heimasíðu ráðstefnunnar, þar komi inn tilkynningar um gesti og frekari dagskrá. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar