Aðdáendur tóku næturlífið í sínar hendur

Euroclub var fullur af fólki.
Euroclub var fullur af fólki. mbl.is/Steinunn Björk

„Þátttaka og sýnileiki aðdáenda er gífurlega mikilvægur þegar kemur að Eurovision. Keppnin væri allt önnur ef atriðin væru það eina sem sæist í sjónvarpinu en engir aðdáendur væru í höllinni.“

Þetta segir Vaughan Staples, forseti breska Eurovision-aðdáendaklúbbsins og aðalskipuleggjandi hins svokallaða Euroclub. Slíkur klúbbur er haldinn samhliða Eurovision-keppninni ár hvert. Um leið og það þótti líklegt að keppnin yrði haldin í Bretlandi byrjaði breski aðdáendaklúbburinn að líta í kringum sig varðandi samstarf til að koma upp Euroclub.

„Við töluðum við aðdáendur sem höfðu reynslu af því að fara á klúbba í fyrri keppnum. Einnig hófst um leið samtal á milli okkar og þeirra borga sem sýndu áhuga á því að halda keppnina og Liverpool var þar á meðal,“ segir Vaughan.

Skemmtistaður skipulagður af aðdáendum

Vanalega er það Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) sem sér um skipulagninguna en að þessu sinni ákváðu forsvarsmenn EBU að hafa samband við breska aðdáendaklúbbinn og vildu færa ábyrgðina á skipulagningunni til þeirra. Staðurinn yrði samt sem áður opinber skemmtistaður keppninnar en yrði skipulagður af aðdáendum.

Merki Euroclub er í úkraínsku fánalitunum.
Merki Euroclub er í úkraínsku fánalitunum. mbl.is/Steinunn Björk

Þegar það kom í ljós að Liverpool myndi halda keppnina höfðu þeir samband daginn eftir og skipulagningin hófst strax. Vaughan hefur farið á margar Eurovision-keppnir í gegnum tíðina og veit hvað gengur upp og hvað ekki á slíkum stað.

„Ég skrifaði niður lista yfir alla þá þætti sem mér fannst mikilvægt að slíkur staður myndi fela í sér. Ég fór svo með listann til þeirra staða sem höfðu sýnt áhuga á að setja upp Euroclub. Camp and Furnace sá sér fært að mæta öllum þeim kröfum og því var sá staður valinn,“ útskýrir Vaughan.

Vaughan Staples er einn af skipuleggjendum Euroclub í ár.
Vaughan Staples er einn af skipuleggjendum Euroclub í ár. mbl.is/Steinunn Björk

Sýnileiki aðdáenda keppninni mikilvæg

„Þátttaka og sýnileiki aðdáenda er gífurlega mikilvægur þegar kemur að Eurovision. Keppnin væri allt önnur ef atriðin væru það eina sem sæist í sjónvarpinu en engir aðdáendur væru í höllinni,“ segir Vaughan.

Vaughan segir að Bretland hafi sett nýtt viðmið með keppninni sem var haldin í Birmingham árið 1998, en hún var fyrsta keppnin sem í raun sýndi áhorfendur í salnum.

„Þar voru aðdáendur sýnilegir og hinseginleikinn einnig. Þetta var ekki lengur keppni með fullum sal af fyrirmennum sem klappa með kurteisum hætti eins og þekktist áður.“

View this post on Instagram

A post shared by mbl.is (@mblfrettir)

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar