„Allt neongrænt í Finnlandi uppselt"

Finnar taka Eurovision mjög alvarlega í ár og er allt neongrænt í landinu löngu orðið uppselt. Framlagi Finna í ár er spáð mjög góðu gengi og er nánast allt finnska samfélagið heltekið af Cha Cha Cha og Käärijä sjálfum

Þetta segja vinkonurnar Heli Marjaana Rantanen og Siru Laine, sem eru komnar hingað til Liverpool til að fylgjast með keppninni. Heli kemur hingað frá Íslandi en hún hefur verið búsett hér á landi í mörg ár. Siru bjó á Íslandi í sex ár en kom hingað frá Barselóna.

Heli Rantanen og Siru Laine styðja sinn mann frá Finnlandi …
Heli Rantanen og Siru Laine styðja sinn mann frá Finnlandi heilshugar. mbl.is/Steinunn Björk

Käärijä-skjaldarmerki og jakkaklæddar styttur

Það skrýtnasta sem þær hafa tekið eftir eru skjaldarmerkin sem hefur verið breytt til heiðurs Käärijä sjálfum. Þar á meðal er skjaldarmerki Nurmijärven-sýslu. Einnig minntust þær á jakkana sem steinstytturnar utan á aðallestarstöðinni í Helsinki hafa verið klæddar í. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar