Daði loksins í beinni

Daði Freyr fær loksins að vera í beinni útsendingu á …
Daði Freyr fær loksins að vera í beinni útsendingu á úrslitakvöldi Eurovision-söngvakeppninnar í kvöld. EBU/Thomas Hanses

Daði Freyr Pétursson, fulltrúi Íslands í Eurovision árin 2020 og 2021, mun loksins koma fram á úrslitakvöldi Eurovision í kvöld. Árið 2020 var keppninni aflýst vegna heimsfaraldursins og árið 2021 lenti íslenski hópurinn í því að kórónuveirusmit kom upp í hópnum.

Þrátt fyrir að hafa komist áfram í úrslitin árið 2021 gat hópurinn því ekki stigið á svið í úrslitunum og var dómararennsli þeirra spilað í staðinn. Það skilaði Íslandi þó fjórða sætinu.

Síðasta atriði fyrir úrslit

Í ár mun Daði taka þátt í skemmtiatriði. Hann verður ekki einn á sviðinu en fimm aðrir lista­menn úr sögu Eurovisi­on taka þátt í atriðinu. Tveir sig­ur­veg­ar­ar verða í hópn­um, hin ísra­elska Netta sem sigraði 2018 og hinn hol­lenski Duncan Laurence sem sigraði árið 2019.

Einnig stíga á svið hinn ít­alski Mahmood, sem tók þátt 2019 og 2022, og sænska söng­kon­an Cornelia Jak­obs, sem flutti fram­lag Svía árið 2022. Sér­stak­ur heiðurs­gest­ur verður hin breska Sonia, sem flutti fram­lag Breta árið 1993, en hún fagn­ar því að þrjá­tíu ár eru frá þátt­töku henn­ar í keppn­inni.

Skemmti­atriðið ber heitið The Li­verpool Song­book og verður síðasta skemmti­atriðið sem boðið verður upp á áður en úr­slit keppn­inn­ar verða til­kynnt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar