Gerður sviptir hulunni af nýjum drykk

Gerður Arinbjarnardóttir, Gyða Dröfn Sveinbjörnsdóttir og Davíð Sigurðsson eru hæstánæð …
Gerður Arinbjarnardóttir, Gyða Dröfn Sveinbjörnsdóttir og Davíð Sigurðsson eru hæstánæð með nýja virknidrykkinn sem kallast Mist. Ljósmynd/Hari

Gerður Huld Ar­in­bjarn­ar­dótt­ir athafnakona hefur meðfram öðrum störfum unnið að þróun nýs íslensks virknidrykkjar síðasta árið. Nú er drykkurinn kominn á markað og Gerður er hæstánægð með útkomuna.

Umræddur drykkur hefur reyndar vakið nokkra athygli síðustu daga þó hann hafi fyrst komið í verslanir nú um helgina. Drykkurinn kallast Mist og kannast margir orðið við nafnið í kjölfar dularfullrar auglýsingaherferðar og leynipartís sem mörgum þekktum Íslendingum var boðið í.

Gerður segir að drykkurinn eigi sér langa forsögu. „Ég hef verið að nota ræturnar Maca og Ashwagandha í talsverðan tíma og hugsaði hversu mikil snilld það væri að geta keypti drykki sem innihéldi þær. Oft koma hugmyndir og fara en þessi hugmynd poppaði alltaf aftur upp þannig ég varð að koma henni áfram og freista gæfunar til að sjá hvað ég kæmist áfram með þetta.

Ég varð fljótt handviss um að það væri markaður fyrir slíkan drykk og hafði því samband við Ölgerðina og bar þessa hugmynd upp fyrir um það bil ári síðan. Þau hjá Ölgerðinni voru þá í miðju kafi að þróa nýjan virknidrykk sem við vorum sammála um að þetta hentaði frábærlega inn í. Samstarfið og þróunin á drykknum hefur því verið í gangi í næstum ár núna og því ótrúlega spennandi að sjá þetta verða að veruleika,“ segir hún og kveðst ekki geta leynt ánægju sinni með útkomuna.

„Þó ég segi sjálf er útkoman algjörlega frábær. Drykkurinn er með spennandi bragðheim og þessum rótum sem hjálpa þér að halda skýrum fókus og jafnari orku.“ 

Drykkurinn hefur verið í þróun síðasta árið og kemur í …
Drykkurinn hefur verið í þróun síðasta árið og kemur í verslanir um helgina. Ljósmynd/Hari

Þegar Gerður er spurð nánar út í ræturnar sem notaðar eru í drykknum kemur í ljós að hún er afar sannfærð um ágæti þeirra. „Mikill og vaxandi áhugi er fyrir rótunum Maca og Ashwagandha og hafa þær margskonar jákvæða virkni. Maca er til dæmis orkugefandi og næringarrík og virkar vel á bæði taugakerfið og andlega líðan. Einnig er talið að hún komi jafnvægi á estrógenmagn í líkamanum. Ashwagandha hefur mikið af sömu eiginleikum en er einnig testósterón-örvandi og eykur blóðflæði. Svo færir Mist þér einnig geggjaða B-vítamín-blöndu sem meðal annars hjálpar til við að halda jöfnu orkustigi yfir daginn.“ 

Koffín úr náttúrulegri uppsprettu

Gyða Dröfn Sveinbjörnsdóttir og Davíð Sigurðsson, starfsmenn á markaðssviði Ölgerðarinnar,  unnu að þróun Mist með Gerði. Gyða segir að virknidrykkir njóti sífellt meiri vinsælda og markmiðið með Mist sé að bjóða upp á drykk sem nýti töframátt náttúrunnar til að hjálpa fólki að halda jöfnu og góðu orkustigi út allan daginn, ásamt fjölda annarra jákvæðra heilsufarslegra þátta sem innihaldsefnin færa því. „Partur af þessu jafnvægi er það mátulega magn af koffíni sem er í Mist. Það hentar ekki öllum að drekka hámarks koffínmagn í hverjum sopa og með mátulegu magni má ná jafnari orku í lengri tíma sem við teljum vera eftirspurn eftir. Þá sækjum við koffínið í náttúrulega uppsprettu, annars vegar úr Yerba Mate-laufum og hins vegar úr grænum kaffibaunum.“

Bætiefni sem auki lífsgæti fólks

Davíð tekur undir þetta og segir að nafnið Mist vísi í þá dulúð sem búi í mikilfengleika náttúrunnar. „Í árþúsundir hefur manneskjan borið gæfu og vit til að hagnýta sér náttúruna til næringar og í lækningaskyni. Þessi lykilhráefni sem Mist færir okkur; Ashwagandha- og Maca-rætur, ásamt Yerba Mate-laufum og vítamínum er allt eitthvað sem við höfum leitað í í þúsundir ára þó að fræðilegan skilning hafi mögulega vantað á einstaka virkni framan af. Á tímum hefur þetta jafnvel haft yfir sér einhvers konar kukl-áru, dulúð og galdrablæ, sem við vísum talsvert til í heimi vörumerkisins, en í dag eru þetta orðin viðurkennd bætiefni sem við tökum inn til að auka lífsgæði okkar og bæta heilsu.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar