Steinunn Björk Bragadóttir
skrifar frá Liverpool
Liverpool-borg glitrar sem aldrei fyrr nú þegar úrslit Eurovision-söngvakeppninnar fara fram. Mikil stemning er í borginni og augljóst að heimamenn eru alveg jafn spenntir fyrir keppninni og þeir sem ferðast hafa til borgarinnar.
Um 100 þúsund manns hafa komið til borgarinnar í vikunni.
Mikil stemmning er á götum Liverpool og eru nánast allir barir og veitingastaðir í miðbænum vel skreyttir. Margir hafa klætt sig upp í tilefni dagsins og sjá mátti ýmsum evrópskum fánum veifað.
Blaðamenn mbl.is eru í Liverpool og munu flytja fréttir beint af keppninni.