Karl III. Bretlandskonungur myndi taka Harry og Meghan opnum örmum ef svo stæði til og vill leita sátta.
Heimildarmenn nærri kónginum segja að hann muni alltaf vilja sættast við Harry og Meghan.
„Tækifærið til þess að leysa málin þarna rann þeim úr greipum í bili. Karl hefur alltaf verið mjög skýr að hann vilji sættast við þau. Dyrnar standa opnar.“
Harry prins var viðstaddur krýninguna en flaug strax aftur heim til Kaliforníu að athöfn lokinni með stuttri viðkomu í Buckinghamhöll. Hann tók því ekki þátt í neinum hátíðahöldum eða viðburðum tengdum krýningunni.
Harry flaug til Englands í farþegaflugi American Airlines, lenti föstudagskvöldið en krýningin var á laugardagsmorgni. Talið er að hann hafi verið alls 28 klukkustundir í Englandi.
Harry klæddist jakkafötum frekar en krýningarskykkju og var ekki með á svölum Buckinghamhallar. Meghan var hins vegar heima með börnin en Archie fagnaði fjögurra ára afmæli sínu þennan sama dag.