Sonja Sif Þórólfsdóttir
skrifar frá Liverpool
Breska ríkisútvarpið, BBC, ýjaði að því í umfjöllun sinni í morgun að Bítillinn Paul McCartney væri mögulega óvæntur gestur á úrslitakvöldi Eurovision í kvöld. Keppnin er haldin í heimaborg McCartney.
Blaðamaður mbl.is hefur heyrt sömu sögusagnir á göngum blaðamannahallarinnar að McCartney sé væntanlegur en hefur þó ekki tekist að staðfesta þann orðróm. Var orðrómurinn á þá leið að McCartney myndi flytja lag látins liðsfélaga síns, John Lennon, Imagine.
Í frétt BBC er það þó rakið að aðeins sé um sögusagnir að ræða. Margir hafi líka talið að Katrín prinsessa af Wales væri væntanleg til Liverpool.
„Ég hélt það það yrðu Karl og Kamilla sem myndu tilkynna stigin, en það verður víst Catherine Tate,“ sagði útvarpsmaðurinn Ryan Clark í léttum tón í Eurovision-umfjöllun á Radio 2.
Blaðamaður hefur nú fylgst með æfingum fyrir lokakvöldið síðan í gær og er sú þriðja og síðasta í gangi þegar þetta er skrifað. Á æfingum hefur lagið Imagine vissulega verið flutt, en það var ítalski hjartaknúsarinn og Eurovision-kempan Mahmood sem flutti það.
Bítillinn McCartney hefur ekki enn rekið inn nefið að því er blaðamaður kemst næst, en það er þó aldrei að vita hvað gerist í kvöld.