Sonja Sif Þórólfsdóttir
skrifar frá Liverpool
Framlag Finnlands í Eurovision-söngvakeppninni naut meiri vinsælda en framlag Svía í útgönguspá eftir dómararennsli gærkvöldsins. ESCxtra birti niðurstöður sínar í gærkvöldi en 3.704 greiddu atkvæði á leið út úr höllinni.
Útgönguspána gerir ESCxtra í samstarfi við ESC Insights, The Euro Trip-hlaðvarpið og BetEurovision.
Finnland hlaut 1.083 atkvæði en Svíþjóð 411 atvkæði. Belgía var í þriðja sæti og Noregur í fjórða sæti.
Útgönguspáin er ekki í samræmi við veðbanka en þar er Svíþjóð með 52% vinningslíkur en Finnland 22%. Þar er svo Úkraína í þriðja sæti en Ísrael í fjórða sæti.