Hvað kemur fyrst upp í hugann þegar ég segi: Tvíburar í dægurtónlist? Þið hafið fimm sekúndur! Nú er ég ekki hugsanalæs maður – og allra síst úr svona mikilli fjarlægð – en svei mér ef þið hafið ekki upp til hópa sagt það sama: „Bee Gees.“
Það ágæta bræðraband geymdi nefnilega án efa frægustu tvíbura dægurtónlistarsögunnar, Maurice og Robin Gibb, sem báðir féllu frá langt fyrir aldur fram. Ekki þarf að verja mörgum orðum í afrek þeirra en Bee Gees heyrist enn reglulega í útvarpi enda þótt gullöld bræðranna barkaþröngu, eins og Halli og Laddi kölluðu þá í frægum virðingarsálmi, Gibba Gibb, hafi verið á diskótímanum í kringum 1980.
Skosku tvíburarnir Craig og Charlie Reid eru líka ógleymanlegir í kumpánlegum lúðaskap sínum. Jú, við erum að tala um The Proclaimers. Þeirra langfrægasta lag, I'm Gonna Be (500 Miles), tyllti sér meðal annars á topp vinsældalistans hér í fásinninu, að því er fram kemur á sjálfri Wikipedíu. Skemmtilega glaðbeittir menn og sannir í öllu sínu. Að ekki sé minnst á staðfestuna, ég meina, 500 mílur er heill hellingur að ganga til fundar við einhvern. Hver sem það nú aftur var.
Nær okkur í tíma eru Madden-bræður, Joel og Benji, sem þekktastir eru fyrir starf sitt með bandarísku rokksveitinni Good Charlotte, auk þess sem þeir starfrækja dúett undir því frumlega nafni The Madden Brothers. Joel er fyrst og fremst söngvari en Benji leikur á gítar. Frægasta plata Good Charlotte er líklega The Young and the Hopeless frá árinu 2002 en hún inniheldur m.a. erkismellinn Lifestyles of the Rich and Famous. Bræðurnir vita allt um þann ágæta stíl enda giftir Nicole Lionelsdóttur Richie og Cameron Diaz.
Ekki fer eins mikið fyrir tvíburasystrum á heimsvísu og ég viðurkenni auðmjúklega að ég þurfti að hringja í vin til að koma mér á bragðið á þeim endanum, dr. Arnar Eggert Thoroddsen. Hann nefndi strax Deal-systur í bandaríska rokkbandinu The Breeders, Kim og Kelley. Margir muna eftir þeirri fyrrnefndu úr The Pixies í áttunni en þær systur hafa músíserað saman í The Breeders frá 1992. Leika þar hvor á sinn gítarinn og syngja. Þegar Kelley gekk í The Breeders kunni hún ekkert fyrir sér í tónlist og Kim ætlaði að setja hana á trommurnar. Það vildi Kelley ekki hafa, tók upp gítar og lét systur sína hraðkenna sér helstu kúnstir. Stórmerkileg saga. Minnið mig endilega á að herma frekar af Deal-systrum við tækifæri.
Doktorinn benti mér einnig á kanadíska dúettinn Tegan and Sara, sem mikið hefur farið fyrir í indísenunni vestra undanfarinn aldarfjórðung eða svo. Tegan Rain Quin og Sara Keirsten Quin heita þær fullu nafni og syngja báðar og leika á hin ýmsu hljóðfæri. Tegan and Sara eiga að baki tíu hljóðversplötur.
Einnig má nefna The Veronicas. Þann dúett stofnuðu tvíburasysturnar Jessica og Lisa Origlasso fyrir bráðum tuttugu árum og nýtur hann gríðarlegrar lýðhylli í Ástralíu og nærsveitum. The Veronicas hafa sent frá sér fimm hljóðversplötur, þar af tvær árið 2021, Godzilla og Human. Þess má geta að systurnar eru miklir dýravinir og hafa barist ötullega fyrir réttindum málleysingja gegnum tíðina.
Nánar er fjallað um tónelska tvíbura í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, meðal annars hér á Íslandi.