Keppendur frá „stóru löndunum fimm“ stíga á sviðið í Eurovision-söngvakeppninni í fyrsta skipti í kvöld, auk úkraínsku hljómsveitarinnar TVORCHI. Nú er mál að kynna sér framlög þessara sex landa fyrir kvöldið.
La Zarra – Évidemment
La Zarra heitir réttu nafni Fatima Zahra Hafdi, er fædd og uppalin í Montréal í Kanada af marokkóskum foreldrum. Hún er sjálflærð í tónlist en hóf ung að aldri að semja lög. Sótti hún innblástur sinn í sína eigin reynslu og þær tilfinningar sem kviknuðu í brjósti hennar.
Hún heldur mikið upp á Eurovision-keppnina og hennar uppáhaldslag úr sögu keppninnar til að syngja er sigurlag Frakklands frá árinu 1977, L‘oiseau et l‘enfant, sem Marie Myriam söng.
La Zarra er langt frá því að vera fyrsti Kanadabúinn sem stígur á Eurovision-sviðið, en Frakkar og Svisslendingar hafa verið nokkuð duglegir við að leita yfir Atlantshafið eftir fulltrúum sínum. Céline Dion er eflaust sú þekktasta í þeim hópi, en hún sigraði keppnina árið 1988 fyrir hönd Sviss, með laginu Ne partez pas sans moi.
Blanca Paloma - Eaea
Blanca Paloma heiðrar minningu ömmu sinnar og menningu Spánar í lagi sínu Eaea. Amma hennar var þekkt flamenco-söngkona í heimalandinu og hefur Blanca sjálf blandað sterkum flamenco-rótum sínum við nútímalega popptónlist í tónlistarsköpun sinni.
Erfitt er að útskýra texta lagsins fyrir þá sem ekki eru spænskumæland því uppruni frasans „eaea“ liggur mjög djúpt í spænskri menningu og sögu. Lagið er eins konar vögguvísa en samkvæmt Blöncu er það þó einnig vísun í þær menningarrætur sem amma Blöncu arfleiddi hana að.
Marco Mengoni – Due vite
Marco Mengoni er vinsæll tónlistarmaður í heimalandi sínu og hefur sungið á heilu íþróttaleikvöngunum á Ítalíu.
Hann er enginn nýgræðingur á Eurovision-sviðinu en hann flutti framlag Ítalíu árið 2013, L‘essenziale. Þá endaði hann í sjöunda sæti en vill eflaust toppa þann árangur í ár.
Gaman er að segja frá því að Marco á afmæli á jóladag, svo það væri einkar viðeigandi ef íslenskir textahöfundar myndu nýta sér eitthvað af lögum hans sem íslenskt jólalag, eins og hefur verið gert við ansi mörg ítölsk dægurlög í gegnum tíðina.
TVORCHI – Heart of Steel
Dúettinn TVORCHI samanstendur af Andrii Hutsuliak og Jeffery Kenny, sá síðarnefndi er upprunalega frá Nígeríu en hefur búið lengi í Úkraínu.
Dúettinn samdi lagið Heart of Steel eftir að hafa fylgst með úkraínska hernum vernda Azovstal stálverksmiðjuna í Maríupol fyrir rússneska innrásarhernum. Er lagið óður um seiglu þeirra sem sátu fastir í verksmiðjunni á meðan sprengjum rigndi yfir þá. Vildu þeir félagar sýna styrk Úkraínumanna í stað þess að leggja áherslu á örvæntinguna og depurðina sem fylgir stríðum.
Úkraínska forkeppnin bar þess sterk merki að stríðsástand er í heimalandinu. Var hún haldin í neðanjarðarbyrgi undir einni af neðanjarðarlestarstöðvum Kænugarðs. Í útsendingunni mátti meira að segja heyra í lestunum bruna fyrir ofan myndverið. Úkraínumenn létu það þó ekki hafa áhrif á sig og héldu eina af flottustu forkeppnum ársins.
Lord of the Lost – Blood and Glitter
Þýska hljómsveitin Lord of the Lost er nokkuð vinsæl í heimalandinu og var spáð sigri í forkeppninni þar í landi nánast frá því að tilkynnt var að hún myndi taka þátt. Hljómsveitin byrjaði sem sólóverkefni aðalsöngvarans Chris Harms, en hann komst þó fljótt að þeirri niðurstöðu að hann þyrfti að hafa vel spilandi band með sér.
Sveitin er óhrædd við glimmer og glamúr þrátt fyrir að tónlist hennar tilheyri hinni svokölluðu goth metal-senu. Blandar sveitin vel saman séreinkennum metal-tónlistar annars vegar og glamúrrokks níunda áratugarins hins vegar. Eru meðlimir sveitarinnar, þá sérstaklega söngvarinn, óhræddir við að stokka upp í erkitýpum kynjatvíhyggjunnar.
Lagið fjallar um andstæður í lífinu, mýkt og hörku, sem þó eru bara sitthvor hliðin á sama peningnum.
Mae Muller – I Wrote a Song
Um leið og það kom í ljós að Bretland myndi halda keppnina fyrir hönd og í samstarfi við Úkraínu myndaðist mikil spenna um það hver myndi syngja framlag Breta á heimavelli. Fyrir valinu varð hin 25 ára gamla Mae Muller.
Mae fæddist árið 1997, sem er einmitt sama ár og Bretland vann síðast Eurovision-keppnina. Hún segir það vera gífurlegan heiður að fá að flytja framlag Breta á heimavelli og er stolt af landi sínu fyrir að halda keppnina fyrir hönd Úkraínu.
Mörg ykkar gætu kannast við andlit Mae Muller, en fyrir þau sem muna eftir myndbandi lagsins Grace Kelly með Mika þá er Mae einmitt stúlkan sem situr ofan í píanóinu í upphafi myndbandsins. Mika var einmitt kynnir Eurovision-keppninnar í Tórínó í fyrra, svo þau tvö eiga ýmislegt sameiginlegt.