Sonja Sif Þórólfsdóttir
skrifar frá Liverpool
Loreen með lagið Tattoo er efst í veðbönkum fyrir úrslit Eurovision-söngvakeppninnar með 52% vinningslíkur. Það er þó ekki þar með sagt að sigurinn sé í höfn því spá veðbanka hefur sannarlega klikkað.
Ef spá EurovisionWorld er borinn saman við úrslit síðustu ára má til dæmis benda á að Kýpur var efst í veðbönkum árið 2018, en það ár vann Netta frá Ísrael. Árið 2017 klikkaði EurovisionWorld líka þegar Búlgaría var efst, en Portúgal vann.
Árinu áður var Rússum spáð sigri en hin úkraínska Jamala stal sigrinum með laginu 1944. Var hún í þriðja sæti þegar veðbankar lokuðu.
EurovisionWorld-veðbankinn hefur þó spáð rétt fyrir 2022, 2021, 2019 og 2015.
Finnland er í öðru sæti í veðbankanum þegar þetta er skrifað með 22% vinningslíkur.