Borgaryfirvöld í Liverpool vonast til þess að Eurovision-söngvakeppnin muni skila borginni minnst 40 milljóna punda hagnaði eða um 6,9 milljörðum króna á gengi dagsins.
Ráð er gert fyrir að um hundrað þúsund manns hafi lagt leið sína til borgarinnar þessa Eurovision-viku en úrslitakvöld keppninnar er í kvöld.
National Westminster Bank, NatWest, spáir því að erlendir ferðamenn muni eyða um 4,8 milljörðum króna í Liverpool og nágrenni í kringum Eurovision. Spáin byggist á gögnum frá Ítalíu sem hélt keppnina í Tórínó á síðasta ári. Þá er gert ráð fyrir að breskir ferðamenn eyði um 2,1 milljarði króna í Liverpool í kringum Eurovision.
Borgaryfirvöld í Liverpool hafa eytt um 688 milljónum króna í að skipuleggja viðburði í borginni.
Í ár kostar framleiðsla Eurovision í Liverpool um fjóra milljarða króna. Þar af greiðir breska ríkisútvarpið, BBC, á bilinu tvo til þrjá milljarða króna en BBC framleiðir keppnina í samstarfi við Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU). Breska ríkið leggur því einn til tvo milljarða í keppnina.
Þessum kostnaði er að mestu mætt með sölu miða á undankvöldin tvö og úrslitakeppnina. Þar að auki eru miðar seldir á rennsli fyrir hverja keppni.
Löndin sem taka þátt í keppninni greiða þátttökugjald og hefur það gjald hækkað í gegnum árin. Lönd greiða þó hlutfallslegan kostnað eftir stærð. Stóru löndin fimm, Spánn, Ítalía, Þýskaland, Bretland og Frakkland, eru helstu kostendur keppninnar. Þau lönd fá sjálfkrafa þátttökurétt í úrslitakvöldinu auk sigurvegara síðasta árs.
Þrátt fyrir það er það yfirleitt landið sem heldur keppnina sem leggur mesta fjármuni í keppnina og hagnast þar að auki mest á keppninni.
Það er mismunandi hversu mikla fjármuni lönd vilja leggja í að halda keppnina. Í sögulegum samanburði er keppnin í Liverpool alls ekki sú dýrasta. Hún er dýrari en til dæmis keppnin í Malmö í Svíþjóð árið 2013, en þá eyddu stjórnvöld um 2,7 milljörðum króna í framleiðsluna. Keppnin í Düsseldorf í Þýskalandi árið 2011 kostaði svipað og keppnin í Liverpool í ár, fjóra milljarða.
Í Kaupmannahöfn árið 2014 var öllu tjaldað til og kostaði keppnin um 7,4 milljarða króna. Aserar eiga þó dýrustu keppnina til þessa, en hún kostaði á bilinu 7,4 til 10 milljarða króna. Þar fyrir utan var svo höllin sem reist var í Bakú fyrir keppnina. Bygging hennar kostaði 13 milljarða króna.