Kate Winslet stóð uppi sem sigurvegari í flokknum besta leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í I am Ruth og Ben Whishaw var valinn besti leikarinn í aðalhlutverki fyrir leik sinn í This is going to hurt þegar BAFTA sjónvarpsverðlaunin voru afhent fyrr í kvöld í Royal Festival Hall í London. Þar voru veittar viðurkenningar fyrir bestu sjónvarpsþáttaraðirnar árið 2022.
Kate Winslet og Mia Threapleton, dóttir hennar, brustu í grát þegar hin 47 ára gamla leikkona tók við verðlaununum. Þær mæðgur léku saman í dramaþættinum I am Ruth og í þakkarræðu sinni beindi Kate orðum sínum að dóttur sinni.
„Ef ég gæti skorið þetta í tvennt myndi ég gefa dóttur minni Miu Threapleton hinn helminginn. Við gerðum þetta saman krakki.“ Á meðan Kate flutti ræðuna sást Mia þerra tárin af augum sér þar sem hún sat úti í sal.
Þá sagði Kate að oft hefðu komið dagar við tökur þáttarins sem reynt hefðu verulega á dóttur hennar, sérstaklega þegar hún þurfti að leika í erfiðum og tilfinningaþrungnum atriðum. Þeir dagar hafi þó ekki síður reynt á móðurhjartað en í þættinum er samband mæðgnanna oft á tíðum erfitt og stormasamt.
Kate sagðist í viðtali við fjölmiðla í áfalli yfir sigrinum.
„Ég bjóst satt best að segja ekki við að vinna svo ég er virkilega gáttuð en svo stolt vegna þess að við bjuggum til eitthvað sem virkilega snerti fólk og sem fólk virkilega hugsaði um og talaði um og er enn að tala við mig um. Það er það öflugasta við þetta starf, að stundum er hægt að ná til fólks.“
Þá var Bad Sisters valin þáttaröð ársins í flokki dramaþáttaraða og Derry Girls var valin besta gamanþáttaröðin.
Nálgast má tæmandi lista yfir tilnefningar og vinningshafa hér.