... heldur hvað maður gerir!

Bragi Ólafsson, Sigtryggur Baldursson, Friðrik Erlingsson og Einar Örn.
Bragi Ólafsson, Sigtryggur Baldursson, Friðrik Erlingsson og Einar Örn. Ljósmynd/SG

„Ofboðslega skemmtileg sessjón að baki með frábærum félögum og bandbrjáluðum snillingum, sem skruppu saman í Sundlaugina til að búa til hávaða og dusta ryð og ryk af rokki og róli,“ skrifaði Friðrik Erlingsson, rithöfundur og gítarleikari Purrks Pillnikk, á Facebook um síðustu helgi. Yfir færslunni mátti sjá nokkrar ljósmyndir af sveitinni að spila en í stað Ásgeirs Bragasonar trommuleikari sem fallinn er frá var kominn Sigtryggur Baldursson, trommuleikari Sykurmolanna og Þeys, sem fyllti stundum skarð Ásgeirs þegar svo bar undir.

Viðbrögðin létu ekki á sér standa enda stórfrétt þegar ein áhrifamesta pönksveit Íslandssögunnar næst á mynd. Og það fyrir utan hljóðver!

Morgunblaðið sló á þráðinn til Einars Arnar Benediktssonar söngvara sveitarinnar og krafðist svara. Er Purrkur Pillnikk að koma saman á ný? Er von á nýju efni? Melarokk 2024?

Purrkur Pillnikk á sviði.
Purrkur Pillnikk á sviði.

Curver í rannsóknarvinnu

„Við höfum verið að huga að endurútgáfu á öllu efni Purrksins. Í fyrra voru 40 ár liðin frá því við spiluðum á Melarokki og okkur langar að taka saman allar plöturnar og gefa út á vínyl í svona „box-setti“ og erum að endur-tónjafna „katalóginn“ og kannski er guðlast að segja það; að setja Tilf sem var 7 tomma með 10 lögum yfir á 12 tommu og sjá hvernig það hljómar því að hljóðið er frekar þjappað á 7 tommunni. Þannig að að fara í stúdíó var svona partur af því ferli hjá okkur að hittast.“

Hugmyndin að endurútgáfunni kviknaði á tónleikum PP Tribute Band á Lemmy í Austurstræti í desember á síðasta ári en þeirri hljómsveit hefur Björn Gunnlaugsson haldið úti í 15 ár.

„Ég, Bragi og Frikki – Ásgeir er auðvitað fallinn frá – hittumst á þeim tónleikum og fórum að ræða endurútgáfu. Þá rifjaðist þessi gamla hugmynd upp um að ekki geta heldur gera og við ákváðum í framhaldinu að hittast og skoða hvað væri í „katalógnum“. Við erum svo með Curver í rannsóknarvinnu við að finna hvað sé til og hvað sé útgáfuhæft.“

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu á laugardag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar