Óskarsverðlaunahafinn Hildur Guðnadóttir lenti í þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að dórófóninum hennar var stolið. Þökk sé samfélagsmiðlum og starfsfólki verslunarinnar SchneidersLaden þá er hið kærkomna hljóðfæri komið í hendur Hildar á ný en þjófurinn reyndi að selja hljóðfærið í versluninni án árangurs.
Hildur birti færslu á Facebook með gleðifréttunum og er hún skælbrosandi á mynd með hljóðfærið í hendi.
„Ég fékk dórófóninn minn aftur!!!“ segir hún.