Leikkonan Lily-Rose Depp er komin með nýjan kærasta. Sá heppni er rappari sem kallar sig 070 Shake, en hann heitir réttu nafni Danielle Balbuena.
Depp er elsta dóttir leikarans Johnnys Depps og fyrrverandi eiginkonu hans, Vanessu Paradis. Hún staðfesti samband sitt við rapparann síðastliðinn fimmtudag á samfélagsmiðlum að því er fram kemur á vef Page Six.
Tilefni myndarinnar var fjögurra mánaða sambandsafmæli þeirra, en þau hafa verið saman síðan um miðjan janúar.
Leikkonan hefur reynt að halda ástalífi sínu fjarri sviðsljósinu, en hún var áður með franska rapparanum Yassine Stein.