Love Island-stjörnurnar Millie Court og Liam Reardon eru byrjuð saman á ný, en þau slitu sambandi sínu í júlí síðastliðnum.
Court og Reardon voru sigurvegarar raunveruleikaþáttanna vinsælu, Love Island, árið 2021. Þau hafa undanfarna viku notið þess að ferðast saman á Spáni, en þau staðfestu rómantískan orðróm sem hefur verið á sveimi þegar myndir náðust af þeim deila sjóðheitum kossi á flugvellinum í Barcelona.
Parið sást saman í apríl síðastliðnum þegar þau fóru í helgarferð, en nú virðist vera að hitna í kolunum. Heimildarmaður Daily Mail segir engan vafa vera á því að þau séu byrjuð saman aftur.
„Þau vildu halda sambandi sínu fjarri sviðsljósinu eins lengi og mögulegt var vegna þess að það höfðu komið upp vandamál í sambandi þeirra áður vegna þrýstings frá aðdáendum,“ sagði hann. „En nú hafa þau kynnst aftur fjarri myndavélunum og sviðsljósinu og hafa endurvakið ástina sem þau fundu fyrst í Love Island-villunni.“