Lögð til hinstu hvílu

Leikkonan Anne Heche lést eftir hrottalegt bílslys í ágúst á …
Leikkonan Anne Heche lést eftir hrottalegt bílslys í ágúst á síðasta ári. AFP

Anne Heche var lögð til hinstu hvílu á mjög sérstökum degi, sjálfum mæðradeginum. Leikkonan, sem lést í kjölfar hrottalegs bílslyss á síðasta ári, var grafin í Hollywood Forever Cemetery Cathedral-grafhýsinu um helgina. 

Samkvæmt TMZ var þetta „mjög sérstök en tilfinningarík athöfn fyrir þá sem elskuðu hana hvað mest.“ Heche var brennd og er duftker hennar nálægt tónlistarmönnunum Chris Cornell og Johnny Ramone og Hollywood-goðsögninni, Mickey Rooney. 

Komst aldrei til meðvitundar

Heche ók bif­reið sinni á mik­illi ferð inn í hús  í Los Ang­eles í Banda­ríkj­un­um í byrjun ágúst á síðasta ári. Grun­ur lék á um að hún hefði ekið und­ir áhrif­um áfeng­is eða fíkni­efna en svo reyndist ekki vera. Hún komst aldrei til meðvitundar eftir slysið og lést dögum síðar. Hún var 53 ára gömul. 

Leik­kon­an sem var þekkt­ust fyr­ir leik sinn í kvikmyndunum Donnie Brasco, Wag the Dog og Six Days, Seven Nights lætur eftir sig tvo syni, Homer og Atlas. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér kann að finnast þú svo umsetinn að þú eigir erfitt með að gera nokkurn skapaðan hlut. Ef þú missir af tækifæri fyrir hádegi færðu annað í kvöld.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
4
Tove Alsterdal
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér kann að finnast þú svo umsetinn að þú eigir erfitt með að gera nokkurn skapaðan hlut. Ef þú missir af tækifæri fyrir hádegi færðu annað í kvöld.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
4
Tove Alsterdal