Hinn umdeildi rappari Kanye West og „eiginkona“ hans Bianca Censori sáust saman nýverið á veitingastaðnum Cecconi's í Vestur-Hollywood.
Undanfarið hefur þó lítið borið á parinu en það opinberaði ást sína í janúar á þessu ári og er talið hafa gift sig í sama mánuði, aðeins tveimur mánuðum eftir að West gekk frá skilnaði sínum við Kim Kardashian. Þau voru gift frá árinu 2014 til 2022.
West og Censori virtust vera ástfangin upp fyrir haus og í góðu skapi á meðan þau ræddu saman og gengu um götur Vestur-Hollywood. Samkvæmt myndum er birtust á PageSix virtist parið heldur framúrstefnulega til fara og samstilltu þau klæðnað sinn.
West klæddist þykkum leggingsbuxum með hnéhlífum og síðerma peysu en Censori var sportleg í ljósum íþróttatopp og gráleitum leggingsbuxum.