Rapparinn Tupac Shakur verður heiðraður í næstu viku með stjörnu á frægðargötu Hollywood (e. Hollywood Walk of Fame). Fyrsta tilkynningin um að hann myndi hljóta þennan heiður kom árið 2014 en dagsetning var aldrei ákveðin.
Nú átta árum seinna verður frægðarstjarnan loksins afhjúpuð. Athöfnin fer fram 7. júní næstkomandi og hægt verður að fylgjast með henni í lifandi streymi á Youtube-síðu Walk of Fame. Shakur hefði orðið 52 ára 16. júní næstkomandi, viku eftir að athöfnin fer fram.