Söngkonan Lizzo hefur fengið nóg af fitusmánun sem beinist að henni á samfélagsmiðlum. Segist hún hvorki reyna að vera feit né grönn heldur reyni hún einfaldlega að lifa heilbrigðum lífsstíl.
Þetta kemur fram í nokkrum tístum á samfélagsmiðlinum Twitter, sem eingöngu fylgjendur hennar geta lesið, og CNN greinir frá. Lizzo segir að í hvert sinn sem hún fer hún á samfélagsmiðilinn hellist yfir hana dónaleg skilaboð og segist hún hata miðilinn. Hún hefur þó ekki gefið það út að hún ætli sér að loka Twitter-reikningi sínum.
Í viðbrögðum við færslu sem gagnrýnir líkamsstærð hennar, segist Lizzo hvorki reyna að vera feit né vilji vera minni en hún er. Svona sé hins vegar líkamsbygging hennar, jafnvel þótt hún borði hollan mat og hreyfi sig reglulega.
How is Lizzo still THIS fat when she’s constantly moving this much on stage?! I wonder what she must be eating 🤣 pic.twitter.com/LjXIa4Rlj6
— Layah Heilpern (@LayahHeilpern) May 29, 2023