Harry Bretaprins mætti ekki í dómstól í Lundúnum í dag eins og búist var við. Með vitnisburði sínum mun Harry skrá sig á spjöld sögunnar sem fyrsti meðlimur konungsfjölskyldunnar til að bera vitni í meira en heila öld.
Harry hefur höfðað mál gegn Mirror Group Newspapers vegna ólöglegrar upplýsingasöfnunar á árunum 1995 til 2011. Áætlað var að opnunarræður lögmanna yrðu gefnar í dag, mánudag, og að Harry myndi bera vitni á þriðjudag. Dómarinn hafði hins vegar beðið hann um að vera viðstaddur í réttarsalnum og tilbúinn til að bera vitni strax í dag, ef opnunarræðunum lyki fyrr en búist var við.
Hollywood Reporter greinir frá að hertoginn af Sussex hafi hins vegar ákveðið að fagna tveggja ára afmæli dóttur sinnar í Los Angeles.