Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness í leikgerð leikhópsins Elefant, hlýtur flestar tilnefningar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, í ár eða 10 talsins. Næstflestar tilnefningar, eða sjö talsins, hlýtur söngleikurinn Chicago.
Veitt verða verðlaun í 17 flokkum auk Heiðursverðlauna Sviðslistasambands Íslands, sem veitt eru einstaklingi sem þykir hafa skilað framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista á Íslandi. Gríman verður afhent í Borgarleikhúsinu miðvikudaginn 14. júní og sýnd beint á RÚV.
Íslandsklukkan er í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar og í sviðsetningu leikhópsins Elefant í samstarfi við Þjóðleikhúsið, en verkið fær meðal annars tilnefningar í flokkunum sýning ársins, leikstjóri ársins, leikari og leikkona í aðalhlutverki og leikari í aukahlutverki.
Chicago er í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar og Sinfoníuhljómsveitar Norðurlands. Verkið fékk sjö tilnefningar í ár.
Ljósmynd/Ármann Hinrik
Chicago er eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Foss í leikstjórn Mörtu Nordal í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Verkið fær meðal annars tilnefningar sem sýning ársins, leikari í aðalhlutverki og leikari í aukahlutverki.
Benedict og Ásthildur með tvær tilnefningar
Leikstjórinn Benedict Andrews fær tilnefningar sem leikstjóri ársins fyrir bæði Ellen B og Ex og leikkonan Ásthildur Úa Sigurðardóttir fær tilnefningar bæði fyrir leik í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í Svartþresti og fyrir aukahlutverk í Macbeth.
Ex fékk meðal annars tilnefningu fyrir sýningu ársins. Þá fengu Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir tilnefningar fyrir framistöðu sína í aðalhlutverkum.
Tilnefningarnar eru eftirfarandi:
Sýning ársins
- Chicago
- Ellen B.
- Ex
- Geigengeist
- Íslandsklukkan
Leikrit ársins
- Á eigin vegum eftir Maríönnu Clöru Lúthersdóttur og Sölku Guðmundsdóttur
- Hið ósagða eftir Sigurð Ámundsson
- Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar eftir Sveinn Ólaf Gunnarsson og Ólaf Ásgeirsson
- Síðustu dagar Sæunnar eftir Matthías Tryggva Haraldsson
- Til hamingju með að vera mannleg eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur
Leikstjóri ársins
- Benedict Andrews – Ellen B.
- Benedict Andrews – Ex
- Viktoría Blöndal – Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar
- Þorleifur Örn Arnarsson – Íslandsklukkan
- Þóra Karítas – Samdrættir
Leikari í aðalhlutverki
- Björgvin Franz Gíslason – Chicago
- Gísli Örn Garðarsson – Ex
- Hallgrímur Ólafsson – Íslandsklukkan
- Jóhann Sigurðarson – Síðustu dagar Sæunnar
- Sveinn Ólafur Gunnarsson – Venus í feldi
Leikari í aukahlutverki
- Arnþór Þórsteinsson – Chicago
- Benedikt Erlingsson – Ellen B.
- Davíð Þór Katrínarson – Íslandsklukkan
- Jörundur Ragnarsson – Prinsessuleikarnir
- Ólafur Ásgeirsson – Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar
Leikkona í aðalhlutverki
- Ásthildur Úa Sigurðardóttir – Svartþröstur
- Guðrún S. Gísladóttir – Síðustu dagar Sæunnar
- Nína Dögg Filippusdóttir – Ex
- María Thelma Smáradóttir – Íslandsklukkan
- Sara Dögg Ásgeirsdóttir – Venus í feldi
Leikkona í aukahlutverki
- Ásthildur Úa Sigurðardóttir – Macbeth
- Ebba Katrín Finnsdóttir – Ellen B.
- Íris Tanja Flygenring – Samdrættir
- Kristín Þóra Haraldsdóttir – Ex
- Þórey Birgisdóttir – Draumaþjófurinn
Draumaþjófurinn fékk meðal annars tilnefningar fyrir dans og sviðshreyfingar, leikmynd, búninga og lýsingu.
Ljósmynd/Jorri
Leikmynd
- Milla Clarke – Macbeth
- Egill Sæbjörnsson – Á eigin vegum
- Mirek Kaczmarek – Prinsessuleikarnir
- Ilmur Stefánsdóttir – Draumaþjófurinn
- Guðný Hrund Sigurðardóttir – Íslandsklukkan
Búningar
- Alexía Rós Gylfadóttir og Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir – Geigengeist
- Guðný Hrund Sigurðardóttir – Íslandsklukkan
- María Th. Ólafsdóttir – Draumaþjófurinn
- Mirek Kaczmarek – Prinsessuleikarnir
- Liucija Kvašyte – Macbeth
Lýsing
- Björn Bergsteinn Guðmundsson og Petr Hloušek – Draumaþjófurinn
- Juliette Louste – Ég lifi enn – sönn saga
- Mirek Kaczmarek – Prinsessuleikarnir
- Kjartan Þórisson – Geigengeist
- Pálmi Jónsson – Macbeth
Geigengeist fékk m.a. tilnefningu sem sýning ársins.
Ljósmynd/Axel Sigurðarson
Tónlist
- Áskell Harðarson – Verk nr. 2.1
- Gígja Jónsdóttir og Pétur Eggertsson – Geigengeist
- Kristjana Stefánsdóttir – Hvað sem þið viljið
- Unnsteinn Manuel Stefánsson - Íslandsklukkan
- Urður Hákonardóttir – Hringrás
Hljóðmynd
- Gísli Galdur Þorgeirsson og Aron Þór Arnarsson – Ellen B.
- Sigurður Ámundason, Óskar Þór Ámundason og Andri Björgvinsson – Hið ósagða
- Unnsteinn Manuel Stefánsson – Íslandsklukkan
- Urður Hákonardóttir – Hringrás
- Þorbjörn Steingrímsson – Macbeth
Söngvari
- Björgvin Franz Gíslason – Chicago
- Björk Níelsdóttir – Þögnin
- Hye-Youn Lee – Madama Butterfly
- Margrét Eir – Chicago
- Valdimar Guðmundsson – Óbærilegur léttleiki knattspyrnnunar
Dansari
- Díana Rut Kristinsdóttir – Til hamingju með að vera mannleg
- Embla Guðrúnar Ágústsdóttir – Góða ferð inn í gömul sár
- Ernesto Camilo Aldazábal Valdes – Íslandsklukkan
- Katrín Vignisdóttir – Chicago
- Þyri Huld Árnadóttir – Hringrás
Danshöfundur
- Gígja Jónsdóttir & Pétur Eggertsson – Geigengeist
- Valgerður Rúnarsdóttir – Dansa, hvað er betra en að dansa
- Þyri Huld Árnadóttir – Hringrás
Dans og sviðshreyfingar
- Juliette Louste – Ég lifi enn – sönn saga
- Lee Proud – Chicago
- Lee Proud – Draumaþjófurinn
- Sigríður Soffía Níelsdóttir og hópurinn – Til hamingju með að vera mannleg
- Unnur Elísabet Gunnarsdóttir – Them
Sproti ársins
- Grasrótarstarf óperulistamanna
- Tóma rýmið
- Dunce – tímarit um dans, koreógrafíu og gjörningalist