Matty Healy, söngvari hljómsveitarinnar 1975 og kærasti Taylor Swift, deildi ástríðufullum kossi með öryggisverði á tónleikum sínum í Danmörku í síðustu viku.
Swift og Healy opinberuðu samband sitt í byrjun maí, rúmlega þremur mánuðum eftir sambandsslit Swift og fyrrverandi kærasta hennar til sex ára, leikarans Joe Alwyn.
Healy er þekktur fyrir að kyssa ókunnuga á tónleikum sínum en sagðist vera hættur því eftir að hann byrjaði með Swift. Síðastliðinn föstudag kom söngvarinn fram á NorthSide-hátíðinni í Eskelunden þar sem hann fór á hnén og deildi innilegri stund með einum öryggisvarða tónleikanna.
Matty Healy shared a kiss with the security guard at The 1975 concert tonight.
— Pop Base (@PopBase) June 3, 2023
pic.twitter.com/fla59kgtey