Þreyttur á því að leika þrumuguðinn Þór

Chris Hemsworth segist ekki vera spenntur fyrir því að leika …
Chris Hemsworth segist ekki vera spenntur fyrir því að leika Þór í enn einni myndinni. AFP/Jon Koaloff

Leikarinn Chris Hemsworth segist hafa verið orðinn þreyttur á því að leika Þór í Marvel-mynd annað hvert ár. Hann kann þó að meta reynsluna en vill núna öðlast nýja reynslu.

Hemsworth segir þetta í nýlegu viðtali við breska tímaritið GQ, en hann lék Þór fyrst árið 2011. Síðan þá hefur hann leikið í þremur öðrum myndum um þrumuguðinn ásamt í nokkrum Avengers-myndum.

Viðurkennir hann að hafa orðið þreyttur á því að þurfa að leika persónuna jafn oft og hann gerði. Hann hafi þó glaðst yfir því að fá smá fjölbreytni í hlutverkið, sérstaklega vegna þeirra ólíku leikstjóra sem leikstýrðu myndunum.

Hemsworth segir að ef hann þyrfti að leika Þór aftur yrðu blæbrigðin önnur en áður. Einnig þyrfti að gera eitthvað mjög róttækt til að halda fólki á tánum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu þér ekki bregða þótt aðrir kunni ekki að meta frumleika þinn og nýjungagirni. Leitaðu þér ráðgjafar í fjármálum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu þér ekki bregða þótt aðrir kunni ekki að meta frumleika þinn og nýjungagirni. Leitaðu þér ráðgjafar í fjármálum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup