Leikkonan Shannon Doherty berst af hörku við krabbamein, sem hefur nú dreift sér og er komið upp í heilann. Doherty greindist fyrst með brjóstakrabbamein árið 2015 og aftur árið 2020, þá var það greint sem fjórða stigs krabbamein.
Doherty er ófeimin við að leyfa fylgjendum sínum að fylgjast með krabbameinsmeðferð sinni á samfélagsmiðlum. Í nýlegri Instagram-færslu sinni segir hún frá því að meinvörp hafi fundist í heila hennar í janúar síðastliðnum og sýnir hún frá geislameðferðinni. Doherty er tárvot um augun og hræðsla hennar er augljós, en hún segist vera með gífurlega innilokunarkennd og því hafi meðferðin verið henni afar erfið. Hún er þó mjög þakklát læknum sínum og segist vera mjög heppin með teymið sem sinnir meðferð hennar.