Með tvær milljónir hlustana á Spotify

Silva & Steini hafa gefið út tónlistarmyndband við lag sitt …
Silva & Steini hafa gefið út tónlistarmyndband við lag sitt If It Was. Ljósmynd/Anna Maggý

Söngkonan Silva Þórðardóttir og píanóleikarinn og söngvarinn Steingrímur Teague mynda jazztvíeykið Silva & Steini. Þau hafa nú gefið út nýtt tónlistarmyndband við lagið If It Was af fyrstu plötu sinni, More Than You Know en það var listakonan, ljósmyndarinn og leikstjórinn Anna Maggý sem sá um að leikstýra myndbandinu.

Tvíeykið er á mála hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu FOUND sem er nýtt af nálinni en það er sérstaklega tileinkað íslensku tónlistarfólki.

Tónlistartímaritið Under The Radar frumsýndi myndbandið á heimasíðu sinni í gær:

„Útgáfa Silvu & Steina af If It Was er lágstemmd og strípuð þar sem raddir þeirra fá að njóta sín óhindrað. Tilfinninganæmur söngur Steina í byrjun lagsins mætir tærri rödd Silvu og andstæðar raddir þeirra mynda glæsilegan samhljóm.“

Lagið gífurlega vinsælt á Spotify

Tvíeykið gaf út plötuna More Than You Know í fyrrasumar þar sem þau flytja jazz í eigin útsetningum en platan verður endurútgefin í viðhafnarútgáfu á vegum FOUND síðar í sumar.

Lagið If It Was, sem samið var af Alan Hampton, hefur notið mikilla vinsælda og er nú þegar með tvær milljónir hlustana á Spotify.  Tónlistarmyndbandið var tekið upp í Vatnasafninu í Stykkishólmi innan um innsetningu listakonunnar Roni Horn þar sem standa 24 súlur með vatni sem fengið er úr helstu jöklum landsins.  

Þá endurspeglar sjónarspilið þema sem finna má í texta lagsins um minningar, missi og endurfæðingu.

„Anna Maggý notaði sína mögnuðu sköpunargáfu og hæfileika til að skapa eitthvað töfrandi,“ segir söngkonan Silva og bætir við:

„Hún nær að framkalla eitthvað algjörlega einstakt með list sinni því hún er svo ástríðufull og veit nákvæmlega hvað hún vill ná fram í augnablikinu.“

Tvíeykið heldur tónleika í Mengi næstkomandi sunnudagskvöld.
Tvíeykið heldur tónleika í Mengi næstkomandi sunnudagskvöld. Ljósmynd/Anna Maggý

Þá leikur tónlistarmaðurinn Jóel Pálsson á bassaklarinett í laginu:

„Ég er fyrst og fremst saxófónleikari svo bassaklarinettið er mitt annað hljóðfæri. Það er mýkri og viðkvæmari hljómur í bassaklarinettinu og góð áskorun að spila á það. Sólóið var síðan improviserað á staðnum.“

More Than You Know er aðgengilegt á streymisveitum og mun koma út hjá plötuútgáfunni FOUND á geisladisk og vínyl þann 18. ágúst. Hægt er að forpanta plötuna hér.

Þá heldur tvíeykið tónleika í Mengi næstkomandi sunnudagskvöld þar sem þau ætla að prufa nýtt efni á tónleikagestum en miða á tónleikana má nálgast hér.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Tafir, ruglingur og samskiptaörðugleikar í vinnunni munu setja svip sinn á þennan mánuð. En aðrir sjá ekki öll mál í sama ljósi og þá er það þolinmæðin sem gildir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Tafir, ruglingur og samskiptaörðugleikar í vinnunni munu setja svip sinn á þennan mánuð. En aðrir sjá ekki öll mál í sama ljósi og þá er það þolinmæðin sem gildir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar