Bandaríski rapparinn Megan Thee Stallion er ófeimin við að sýna íturvaxin líkama sinn og er þekkt fyrir að flagga hálfnöktum líkama sínum á samfélagsmiðlum, sviðinu og rauða dreglinum.
Stallion birti af sér örstutt myndband um helgina á samfélagsmiðlum og það ætlaði allt um koll að keyra, en þar sést rapparinn dansa við slagarann, Body, sem hún gaf út árið 2020. Lagið er án efa eitt vinsælasta „twerk“ danslag síðustu ára.
Í myndskeiðinu er Stallion klædd í mynstrað bikiní, með sólgleraugu og leyfir hárinu að feykjast um í sumargolunni.
Yfir 500.000 manns hafa líkað við myndbandið á TikTok og Instagram.