Söngkonan Pink lenti í sérdeilis einkennilegu atviki á tónleikum sínum í Lundúnum um helgina. Einn tónleikagestanna henti poka upp á svið sem innihélt ösku látinnar móður sinnar og átti söngkonan í stökustu vandræðum með að skilja af hverju.
Myndband sem náðist af atvikinu er nú í dreifingu á samfélagsmiðlum og má þar sjá þegar pokinn með öskunni lendir við fætur söngkonunnar.
„Er þetta mamma þín?“ heyrist Pink segja við tónleikagestinn sem gerðist svo djarfur að henda öskunni á sviðið.
Söngkonunni er augljóslega brugðið, en hún leggur pokann á sviðsbrúnina áður en hún heldur ótrauð áfram flutningi sínum á laginu Just Like a Pill.
Someone gave their Mothers ashes to Pink. I need yall to have boundaries like girl what?! 😭😂 pic.twitter.com/OkL4762fEs
— Andrew (@AsAndrewSpeaks) June 26, 2023