Ekin-Su Cülcüloglu og Davide Sanclimenti, sigurvegarar síðustu þáttaraðar Love Island, hafa nú farið hvort í sína áttina. Rétt misstu þau af því að halda upp á ársafmæli sambandsins 11 mánuðir eru síðan þau stóðu uppi sem sigurvegarar raunveruleikaþáttarins, eftir nokkuð stormasama sambandsbyrjun.
Saclimenti deildi fréttunum á Instagram-síðu sinni, einungis þremur dögum eftir að parið sást síðast opinberlega saman. Samkvæmt heimildarmanni Sun hafði fyrrverandi parið átt erfitt uppdráttar upp á síðkastið og þrátt fyrir að hafa reynt sitt besta til að viðhalda sambandinu hafi þau ákveðið að slíta því.
Sambandið virðist þó hafa staðið á brauðfótum í þó nokkurn tíma, en orðrómur um framhjáhald Saclimenti spratt upp oftar en einu sinni. Í fyrrasumar sást Saclimenti meðal annars úti á lífinu með tveimur íslenskum konum og fór Love Island-samfélagið nánast á hliðina í kjölfarið.