Brady og Shayk stinga saman nefjum

Eru Tom Brady og Irina Shayk nýjasta parið í Hollywood?
Eru Tom Brady og Irina Shayk nýjasta parið í Hollywood? Samsett mynd

NFL-stjarnan Tom Brady og fyrirsætan Irina Shayk eru sögð vera að stinga saman nefjum þessa dagana, en þau sáust fara saman heim til Bradys og eru sögð hafa eytt helginni á heimili hans í Los Angeles, Bandaríkjunum.

„Þetta er nýlunda og í augnablikinu er þetta afskaplega afslappað og frjálslegt,“ sagði heimildamaður Page Six, en Brady og Shayk hittust í júní í glæsilegu brúðkaupi milljarðamæringsins Joe Nahmad og fyrirsætunnar Madison Headrick á eyjunni Sardiníu. 

Shayk er ekki fyrsta fyrirsætan í lífi Bradys. Hann var áður giftur ofurfyrirsætunni Gisele Bündchen, en þau skildu í október síðastliðnum eftir 13 ára hjónaband og eiga saman tvö börn.

Þá er Brady ekki fyrsti íþróttamaðurinn í lífi Shayk, en hún var áður með knattspyrnustjörnunni Cristiano Ronaldo í fimm ár áður en þau slitu sambandi sínu 2015. Þá var hún einnig með leikaranum Bradley Cooper og eignuðust þau saman dóttur árið 2017. Leiðir þeirra skildi árið 2019 eftir fjögurra ára samband. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú nýtur þess að vera nálægt maka þínum í dag. Varastu að senda misvísandi skilaboð. Það gæti reynst þér dýrkeypt.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Torill Thorup
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Sarah J. Naughton
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú nýtur þess að vera nálægt maka þínum í dag. Varastu að senda misvísandi skilaboð. Það gæti reynst þér dýrkeypt.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Torill Thorup
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Sarah J. Naughton