Íslenska djasstónlistarkonan Laufey hefur skrifað undir samning við alþjóðlega útgáfurisann Warner Chappell Music. Í dag státar Laufey af 500 milljónum streyma þvert yfir allar streymisveitur.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Warner Chappel Music sendi frá sér.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Laufey skotist hratt upp á stjörnuhimininn innan tónlistarsenunnar á undanförnum árum.
Á síðasta ári þreytti Laufey frumraun sína með plötunni „Everything I Know About Love“ og naut platan mikilla vinsælda. Mest spilaða lag plötunnar ber heitið „Valentine“ og hefur því verið streymt rúmlega 65 milljón sinnum á Spotify.
Önnur plata Laufeyjar, „Bewitched,“ er væntanleg 8.september. Á plötunni er meðal annars að finna lagið „From The Start,“ en lagið hefur notið gífurlegra vinsælda síðan það kom út fyrr í sumar. Lagið er nú að finna á einum af vinsælustu spilunarlistum Spotify, „Today's Top Hits“ og nýtur Laufey þar félagsskaps margra frægustu tónlistarmanna heims.
Framundan hjá Laufeyju er tónleikaferðalag í haust, en hún mun einnig koma fram með Sinfóníuhljómsveit Bandaríkjanna í Washington D.C. þann 8.september og með Sinfóníuhljómsveit Los Angeles 16. september.
„Við hjá Warner Chappel stærum okkur af því að vinna með hæfileikaríkustu frásagnarlistamönnum heims og því er Laufey fullkominn viðbót í teymið okkar. Meðfæddir tónlistarhæfileikar Laufeyjar, ljóðrænt hugvit hennar, tenging hennar við aðdáendur og sviðsframkoma eru aðeins nokkrir þættir sem valda því að stjarna hennar rís sífellt hærra,“ er haft eftir Gabz Landman og David Goldsen, forseta og yfirmanni Warner Chappel Music í tilkynningunni.