Söngkonan Britney Spears er komin með súlu inn á heimili sitt og fagnaði nýjasta innanstokksmuninum með því að deila fyrsta dansinum sem aðdáendum sínum á Instagram-reikningi sínum.
Spears, sem er óhrædd við að deila myndböndum af sér dansandi í stofunni heima, dansaði að þessu sinni í hlébarðabikiníi eins og henni einni er lagið og augljóst er að hún hefur engu gleymt frá því hún fór síðast í tónleikaferð.