Íslenska djasstónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir sat fyrir hjá tískutímaritinu Vogue í Skandinavíu á dögunum.
Á undanförnum árum hefur Laufey skotist hratt upp á stjörnuhimininn, en hún skrifaði nýverið undir samning við alþjóðlega útgáfufyrirtækið Warner Chappel Music og hefur verið streymt töluvert á Spotify.
Myndirnar birtust ásamt viðtali um tónlistarferil Laufeyjar í nýjasta tölublaði Vogue Scandinavia.
Á myndunum skartar Laufey glæsilegum fatnaði með íslenska náttúru í bakgrunni. Það var ljósmyndarinn Saga Sig sem tók myndirnar, Anna Clausen sá um stíliseringu og Harpa Káradóttir sá um förðun og hár.