Einangruð í kjölfar skilnaðarins

Britney Spears virðist ekki eiga marga að þessa dagana.
Britney Spears virðist ekki eiga marga að þessa dagana. AFP/Valerie Macon

Söngkonan Britney Spears á engan að í kjölfar þess að eiginmaður hennar, Sam Ashgari, sótti um skilnað. Spears hefur verið í litlu sambandi við móður sína og systur í þau 13 ár sem liðið hafa síðan hún var svipt sjálfræði sínu. Einnig er samband hennar við synina tvo, sem hún á með Kevin Federline, stopult ásamt því að flutningar Federline og sonanna til Havaí eru á döfinni.

Þetta staðfestir vinur Spears við Page Six, þar sem hann segir að ástæðan sé að samband Spears við bæði móður sína og systur er slæmt. Spears hitti móður sína síðastliðið vor í fyrsta sinn í þrjú ár, en þær virðast ekki hafa náð fullkomnum sáttum. Segir vinurinn einnig að þrátt fyrir ástandið sé Spears nokkuð brött.

Annar heimildarmaður Page Six segir að Spears eigi í engu sambandi við systur sína, Jamie Lynn Spears, og að fréttir sem voru sagðar af endurfundum þeirra fyrr í sumar hafi verið uppspuni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg