Poppstjarnan Britney Spears er þekkt fyrir að deila furðulegum myndskeiðum af sér á samfélagsmiðlum, en síðastliðna helgi birti hún tvö myndskeið sem hafa vakið mikla athygli.
Netheimar loguðu í síðustu viku þegar eiginmaður Spears, Sam Asghari, sótti um skilnað og sakaði poppstjörnuna um að hafa haldið við einn af starfsmönnum sínum.
Um helgina birti Spears svo tvö furðuleg myndskeið, annars vegar þar sem hún liggur berbrjósta uppi í rúmi, og hins vegar þar sem karlmaður fer niður á hnén og sleikir fótlegginn á henni.