Lofuð en ekki trúlofuð

Lofaða parið.
Lofaða parið. Skjáskot/Instagram

Raunveruleikastjarnan Larsa Pippen þvertekur fyrir það að hún sé trúlofuð syni Michael Jordan, Marcus Jordan. Stjarnan, sem flestir þekkja úr raunveruleikaþáttaröðinni The Real Housewives of Miami, kvað niður sögusagnirnar á þriðjudag ásamt kærasta sínum í hlaðvarpsþætti parsins Separation Anxiety with Larsa Pippen and Marcus Jordan. 

„Við erum ekki trúlofuð,“ sagði Pippen, 49 ára. „Þú gafst mér loforðshring, ekki trúlofunarhring,“ útskýrði raunveruleikastjarnan. 

Jordan, 32 ára, viðurkenndi að hafa gefið kærustu sinni loforðshring og að parið hafi rætt brúðkaup og hjónaband en að það væri ekki á forgangslista þeirra í augnablikinu. 

Sögusagnir um trúlofun fóru á kreik í síðustu viku eftir að Pippen sást með demantshring á vinstri baugfingri þegar hún yfirgaf veitingastað í Vestur-Hollywood. Pippen sagði heillaóskum hafa rignt yfir parið, en að þær bíði betri tími. 

Ekki eru allir ánægðir með samband Pippen og Jordan, en faðir hans er mjög ósáttur við samband parsins og 16 ára aldursmun þeirra. Pippen er fyrrverandi eiginkona Scotties Pippens, fyrrverandi liðsfélaga Michael Jordans og vinar. 

View this post on Instagram

A post shared by Larsa Pippen (@larsapippen)



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup