Samfélagsmiðlastjarnan Joe Muchlinski, betur þekktur undir TikTok-nafni sínu VonViddy, er látin 32 ára að aldri. Systir hans Martha Muchlinski greindi frá andláti hans á samfélagsmiðlum á þriðjudag, en samkvæmt skrifstofu réttarlæknis í Hennepin-sýslu þá lést Joe Muchlinski á mánudag.
Muchlinski var vinsæll á samfélagsmiðlinum TikTok og var með yfir 170.000 fylgjendur og hafði öðlast milljónir „likes” á myndskeiðin sem hann deildi.
@vonviddy It's all love
♬ original sound - VonViddy
„Ég vil staðfesta hér og nú fyrir ykkur, aðdáendum hans, að Joe hefur tapað langri baráttu sinni við geðsjúkdóma en hann féll fyrir eigin hendi,” sagði systir hans í TikTok-myndskeiði sem birtist á þriðjudag. „Joe háði langa og erfiða baráttu við geðsjúkdóma en okkar von er sú að hann hafi nú öðlast frið,” sagði systir hans.
@martha_merced Joe was my first word. He was my older brother, my only sibling, and this is one of the worst days of my life. I know folks have been concerned since his (Vonviddy's) last video and deserve some closure.@VonViddy #vonviddy #closure #mentalhealthmatters #mentalillness ♬ original sound - martha merced
Ef þú ert að upplifa sjálfsvígshugsanir er hjálparsími Rauða krossins, 1717, opinn allan sólarhringinn. Einnig er netspjall Rauða krossins, 1717.is, opið allan sólarhringinn. Píeta-samtökin veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218. Á netspjalli á Heilsuvera.is er einnig hægt að ráðfæra sig við hjúkrunarfræðing um næstu skref. Ef þú ert í bráðri hættu hringdu í 112.