Sjónvarpsstjarnan Martha Stewart er stödd á Íslandi um þessar mundir.
Á Facebook-síðu íslensku súkkulaðigerðarinnar Omnom er greint frá því að Stewart hafi kíkt óvænt við í gær ásamt Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands.
Þá birti Stewart mynd af sér við Sky Lagoon á Instagram-síðu sinni í gær.