Sagður eiga nokkra daga ólifaða

Steve Harwell, fyrrverandi forsprakki Smash Mouth, á sviði árið 2012.
Steve Harwell, fyrrverandi forsprakki Smash Mouth, á sviði árið 2012. AFP/Getty Images/Mike McGinnis

Steve Harwell, fyrrverandi forsprakki hljómsveitarinnar Smash Mouth, liggur nú fyrir dauðanum að sögn bandarískra fjölmiðla.

Harwell, 56 ára, er með lifrarbilun á lokastigi og hlýtur nú sérhæfða líknar- og lífslokameðferð á heimili sínu, en söngvarinn á að sögn heimildarmanns Entertainment Tonight aðeins einhverja daga eftir ólifaða. Vinir og vandamenn Harwell hafa verið að heimsækja söngvarann síðastliðna daga til að kveðja.

Heilsu Harwell hefur hnignað mjög undanfarin ár en söngvarinn glímdi lengi við áfengisfíkn og greindist með hjartasjúkdóm árið 2015.

Harwell yfirgaf Smash Mouth, sem er þekkt fyrir lögin All Star og I’m a Believer, í október 2021 til þess að huga að heilsu sinni. Söngvarinn Zach Goode tók við af Harwell sem nýr aðalsöngvari sveitarinnar.

Uppfært:

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar