Steve Harwell, fyrrverandi forsprakki hljómsveitarinnar Smash Mouth, er látinn 56 ára að aldri.
Fjölmiðlar vestanhafs greina frá þessu og hefur dagblaðið New York Times eftir umboðsmanni hljómsveitarinnar, Robert Hayes, að lifrarbilun hafi orðið Harwell að bana.
Greint var frá því fyrr í dag að söngvarinn lægi við dauðans dyr og nyti sérhæfðrar líknar- og lífslokameðferðar á heimili sínu.
Vinir og vandamenn Harwell hafa að undanförnu heimsótt hann til að kveðja.
Heilsu Harwell hnignaði mjög síðustu ár en söngvarinn glímdi lengi við áfengisfíkn og greindist með hjartasjúkdóm árið 2015.
Harwell yfirgaf Smash Mouth, sem er þekkt fyrir lögin All Star og I’m a Believer, í október 2021 til þess að huga að heilsu sinni.