Glæpasagan Reykjavík eftir þau Katrínu Jakobsdóttur og Ragnar Jónasson heldur áfram að fá lofsamlega dóma í stórum fjölmiðlum.
Nú síðast var bókin til umfjöllunar í New York Times og New York Post en áður hafði hún verið hlaðin lofi í stórum miðlum á Bretlandi og hinum Norðurlöndunum.
Reykjavík er „óaðfinnanlega fléttuð, með stórkostlegum persónum og fjölmörgum vel undirbyggðum vendingum“, segir Sarah Weinman, gagnrýnandi New York Times, um helgina og velur bókina sem eina af fjórum athyglisverðustu glæpasögunum sem koma út í Bandaríkjunum í september.
Þá valdi New York Post Reykjavík sem eina af sex bestu bókum vikunnar og í aðdraganda útgáfunnar í sumar skrifaði gagnrýnandi Kirkus Review: „Þessi hefði glatt Agöthu Christie.“