Leikkonan og fyrirsætan Carmen Electra vakti mikla athygli á síðasta ári þegar hún stofnaði eigin OnlyFans-reikning. Svo virðist sem henni hafi vegnað vel á miðlinum, en á dögunum afhjúpaði hún hvaða líkamshluti væri vinsælastur meðal aðdáenda hennar á OnlyFans.
Á miðlinum getur fólk selt myndir og myndskeið sem það framleiðir á rásum sínum og hafa margir nýtt miðilinn til að selja klámfengið efni.
Í nýlegu viðtali við People segir Electra fæturna á henni vera vinsælastar á OnlyFans. „Ég fæ svo margar fótabeiðnir sem mér finnst svo fyndið. Ég er alltaf bara: „Hvað myndir þú vilja sjá mig gera við fæturna? Ætti ég að stappa á vínberjum? Setja þeyttan rjóma á þá?“,“ sagði hún.
Áhugi á fótum Electru hefur þó lengi verið til staðar. „Í gamla daga á netinu voru síður helgaðar fótunum á mér í háum hælum. Ég rakst óvart á þær einu sinni svo ég hef alltaf vitað að þær væru til,“ útskýrði hún.
Electra, sem varð fimmtug á síðasta ári, var afar vinsæl á tíunda áratug síðustu aldar. Hún sat reglulega fyrir á forsíðu tímaritsins Playboy og fór auk þess með hlutverk í hinum vinsælu þáttum Baywatch.