Jón Gnarr snýr aftur á svið Samkomuhússins snemma á næsta ári í uppsetningu á leikverkinu And Björk, of course eftir Þorvald Þorsteinsson sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í febrúar 2024.
Jón hefur komið víða við í skemmtanabransanum, hann sá um útvarpsþáttinn Tvíhöfða ásamt Sigurjóni Kjartanssyni í mörg ár, lék eftirminnilega karaktera í Fóstbræðrum og sló í gegn sem sjálfur Georg Bjarnfreðarson í hinum geysivinsælu Vakta-seríum.
„And Björk, of course er hrollvekjandi háðsádeila þar sem merkingarleysi nútímans er lýst án miskunnar. Verkið er í senn sprenghlægilegt, óviðeigandi og óþægilegt en það fjallar um sjálfsmynd okkar og hinn eilífa vanmátt manneskjunnar í að mæta sjálfri sér eða taka ábyrgð á lífi sínu,“ segir í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyri.
„Þetta er magnað leikverk og persónulega mér mjög að skapi þar sem það er svolítið svipað mínum eigin stíl sem leikskálds. Mér finnst þessi nálgun og stíll mjög fyndinn en líka mjög erfiður því það er verið að fjalla um alvarleg mál á kjánalegan hátt og það skapar einhver óþægindi sem mér finnst ofboðslega skemmtilegt,“ segir Jón Gnarr.
Glæsilegur hópur listamanna tekur þátt í uppsetningunni en leikstjórn er í höndum Grétu Kristínar Ómarsdóttur. Brynja Björnsdóttir mun sjá um búninga og leikmynd.
Einvalalið leikara mun stíga á svið ásamt Jóni á sviði Samkomuhússins á næsta ári en þau Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, Eygló Hilmarsdóttir, Arna Magnea Danks, Davíð Þór Katrínarson, María Pálsdóttir og María Heba Þorkelsdóttir fara öll með hlutverk í And Björk, of course.