Tónlistarmaðurinn Charlie Puth er trúlofaður kærustu sinni, Brooke Sansone. Puth tilkynnti gleðitíðindin í færslu á Instagram á fimmtudag, en tónlistarmaðurinn flaug til New York-borgar og bað Sansone að giftast sér.
„Ég flaug til New York í dag til þess að biðja bestu vinkonu mína um að giftast mér og hún sagði, já,“ skrifaði Puth við myndaseríu sem sýnir parið fagna trúlofuninni. Puth og Sansone fögnuðu með því að gæða sér á ekta ítalskri pizzu á veitingastaðnum Lucali í Carroll Gardens í Brooklyn. Á myndunum sést Sansone með stóran og glæsilegan demantshring á baugfingri.
Puth opinberaði samband sitt við Sansone í desember 2022.