Missti stjórn á ökutækinu og keyrði á

Khloe Kardashian og Lamar Odom voru gift frá 2009 til …
Khloe Kardashian og Lamar Odom voru gift frá 2009 til 2013, en samband þeirra var sannarlega enginn dans á rósum. AFP

Fyrrverandi körfuboltakappinn Lamar Odom slapp furðu vel þegar hann missti stjórn á ökutæki sínu, hvítum Mercedes Benz, og keyrði á tvo kyrrstæða bíla snemma morguns í síðustu viku. 

TMZ greinir frá því að Odom hafi verið á heimleið frá vini sínum í Norhridge í Kaliforníu um þrjúleytið þegar hann hafi misst farsímann sinn. Þegar hann hafi teygt sig eftir símanum hafi hann hins vegar misst stjórn á bílnum og keyrt á bílana tvo.

Odom hefur oft lent í vandræðum vegna áfengis- og fíkniefnavanda, en hann fannst meðvitundalaus í vændishúsi í október 2015 og lá lengi á sjúkrahúsi og var vart hugað líf. Fram kemur að lögreglan hafi spurt Odom hvort hann hafi keyrt undir áhrifum áfengis eða fíkniefna sem hann neitaði. 

Engin slys urðu á fólki, en eins og sjá má á myndum sem birtust á TMZ varð ökutæki Odoms fyrir þó nokkrum skemmdum og sömuleiðis bílarnir tveir sem hann keyrði á. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup