Tónlistarkonan Taylor Swift og NFL-leikmaðurinn Travis Kelce eru sögð vera nýjasta parið í Hollywood.
Heimildarmaður The Messenger segir parið vera að hittast á „rólegu nótunum“ og að söngkonan vilji ekki flýta sér í samband.
Kelce hefur þó viðurkennt að hafa verið hrifinn af Swift í þónokkurn tíma og er sagður hafa reynt að koma símanúmerinu sínu til söngkonunnar þegar hann sótti tónleika hennar í sumar.
Swift kynti undir orðróm um mögulegt ástarsamband hennar og íþróttamannsins á dögunum þegar hún sást með hálsmen með fæðingarsteini Kelce, en hann er í voginni. Sjálf er Swift bogmaður.
Greint var frá því í apríl að Swift og fyrrverandi kærasti hennar til sex ára, leikarinn Joe Alwyn, væru hætt saman. Söngkonan tók saman við umdeilda söngvara hljómsveitarinnar 1975, Matt Healy, skömmu eftir sambandsslitin en því lauk í sumar.